Kveðja frá kennara

Rebekka mín.

Þakka þér fyrir samveruna undanfarin 2 ár. Þú ert yndisleg stúlka sem ert vel upp alin og gott að hafa nálægt sér. Þú ert vinnusöm og uppskerð eins og þú sáir.

Með kveðju Anna


Gæluverkefni

Við árgangurinn fengum að gera gæluverkefni sem maður fékk að ráða um hvað var. Ég valdi að fjalla um íslensku sauðkindina og var að vinna að þessu verkefni í 3 vikur. Ég lærði ýmislegt t.d. hvenær sauðkindin kom til Íslands, hve margar þær voru árið 1980 og að þeim hefur farið fækkandi. Mér fannst þetta mjög skemmtilegt og væri til í að gera þetta aftur.InLove

 

 


Tyrkjaráns leikritið

  1. Mér finnst kostirnir við það að setja leikritið Tyrkjaránið í tengslum við námsefni vera góð tilbreyting á námsefni.
  2. Mér finnst ég ekki læra námefnið betur með því að setja upp leikrit af því að ég hef lært allt sem kom fram í leikritinu.
  3. Ég man ekki eftir neinum göllum.Whistling

Danska

Í dönsku hef ég lært grunnorðaforða og bíð eftir að geta haldið áfram að læra dönsku í efri bekkjum. Ég hef verið að læra t.d. persónulýsingar, matur, fatnaður, litir og tölur. Mér fannst gaman að læra dönsku sérstaklega vegna þess að ég hef ekki lært hana áður. Mér hefur gengið mjög vel að vinna í dönskunni.Halo

 


Fuglar

Fyrir nokkrum vikum byrjuðum við á verkefni um fuglana. Ég lærði heilann helling og vissi ekki eins mikið og ég veit núna. Ég gerði 14 glærur í power point um alla flokkana. Mér fannst þessi vinna mjög skemmtileg og væri til í að gera svona verkefni aftur.

Ef þú vilt sjá þetta power point þá er það hér fyrir neðan.Wink

 

 


Evrópa

Ég og árgangurinn minn unnum Evrópu verkefni. Ég mátti velja 2 lönd annað í power point og hitt í photo story. Ég lærði mjög mikið og fannst þetta mjög áhugaverð vinna og mér fannst mjög gaman að vinna í photo story því þetta er alveg nýtt forrit sem ég var að læra á. Þetta verkefni hér að neðan er um Grikkland og er í photo story. Góða skemmtun Sideways


Anne Frank

Ég hef verið að vinna við verkefni í ensku sem Auður kennari lét mig hafa, ég átti að gera photo story um Anne Frank. Ég lærði fullt af nýjum orðum á ensku. Mér fannst skemmtilegast að lesa dagbókina hennar Önnu Frank. Ég las hefti en það var dagbók Önnu Frank og ég gerði svo verkefni um hana en svo þetta.

Hér getið þið fengið að sjá þetta photo story.Kissing


Stærðfræði hringekkja

Í stærðfræði höfum við verið í hringekkju, en það er bara á föstudögum en þá fer ég á milli bekkja og vinn allskonar verkefni. Ég lærði allt þetta sem ég nefni nýtt og hafði meira en svo gaman af því. Hjá Önnu höfum við gert ýmisleg verkefni t.d. ljóð um mælingar sem virkar einhvernvegin svona:

M.....

Æ.....

L.....

I......

N.....

G.....

A......

R.....

Hjá Helgu hef ég t.d. lært um prímtölur en það eru t.d. 13= 1+3=4. Hjá Auði hef ég lært um ýmislegt eins og líkur þá meina ég eins og: hvað eru margar líkur á að...  Wink


Hallgrímur Pétursson

Ég hef verið að vinna power point um Hallgrím Pétursson. Ég byrjaði á því að gera word-skjal með fullt af upplýsingum og lét eitthvað af þeim í power pointið. Upplýsingarnar eru fengnar af wikipedia og ruv.is. Ég átti að læra eitthvað þrennt nýtt  í power point tækni. Ég hef lært að gera myndir svart hvítar og allskonar litabrellur, hvernig texti passar best við bakrunninn og þegar punktur er við texta þá er hægt að láta aukaatriðin vera í bandstriki fyrir neðan. Mér fannst þetta mjög skemmtileg vinna því ég lærði heilann helling og hafði gaman af þessu. Hér sjáið þið power point sýninguna mína.Grin 

Góða skemmtun...

                                                                                                                                            


Evrópa

Síðustu vikurnar er ég búin að vera að læra um Evrópu. Ég hef verið að lesa bókina Evrópa álfan okkar og vinna ýmis verkefni t.d. fengum við 3 lönd sem við fundum upplýsingar um og púsluðum svo Evrópu kortið á vegg í skólanum. Ég hef lært allt um Evrópu nýtt. Mér gekk vel með vinnuna og kom þessu á bloggið mitt á góðum tíma.

 Ég fékk að velja hvaða land í Evrópu ég vildi læra meira um. Mér fannst sú vinna skemmtilegust. Ég valdi Búlgaríu og skrifaði upplýsingarnar í power point og hér er þetta power point.Grin


Næsta síða »

Höfundur

Rebekka K Björgvinsdóttir
Rebekka K Björgvinsdóttir
Ég heiti Rebekka og er hálf finnsk 13 ára og er í Ölduselsskóla. Þetta er skóla blogg

Apríl 2024

S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband